Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og einn banana til að fá kalcíum Líka eina appelsínu, útaf c-vítamíninu og einn bolla af grænu te án sykurs, til að forðast sykursýki. Svo má ekki gleyma lýsinu sem er náttúrulega allra meina bót.
Drekka tvo lítra af vatni alla daga (Já, og síðan að pissa því, sem tekur tvöfaldan tímann sem það tók að drekka það) Á hverjum degi borða jógúrt og eitt skot af LGG út af gerlunum sem enginn skilur hvað gera, en ef þú færð ekki eina og hálfa milljón á dag mun það hafa skelfilegar heilsufarslegar afleiðingar.
Daglega taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall, og drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi. Og annað hvítt fyrir taugakerfið. Og einn bjór, sem ég man ekki hvaða gagn á að gera. Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga einn RedBull ísskápnum til að drekka daginn eftir, nema náttúrulega ef þú ert þá búinn að fá heilablóðfall. Ef það gerist, muntu ekki taka eftir því. Daglega borða trefjar. Mikið, mjög mikið af trefjum. Þar til þú kúkar heilli peysu. Það á að borða fjórar til sex máltíðir á dag, hollar, fitulitlar máltíðir og ekki gleyma að tyggja hvern munnbita hundrað sinnum. Með smá útreikningi er ljóst að það tekur þig um fimm klukkustundir á dag að borða.
Ó, og síðan má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð.
Á eftir jógúrtinu og trefjunum, tannbursta ; á eftir eplinu, tannbursta; á eftir banananum, tannbursta ... Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleyma tannþræðinum og munnskolinu með tilheyrandi gurgli. Best að stækka baðherbergið og setja þar inn hljómflutningstækin þín, því þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma: vatnsþambið, trefjarnar,tennurnar...
Síðan á að sofa í átta stundir og vinna aðrar átta plús þessar fimm sem fara í að borða. Þetta gerir tuttugu og eina klukkustund. Þá áttu þrjár stundir eftir, það er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá þann daginn.
Samkvæmt könnunum eyðum við þremur stundum daglega í sjónvarp...og ekki gleyma tölvunum!!! En þú hefur engan tíma í svoeiðis, því daglega áttu að fá þér a.m.k. hálftíma göngutúr (Ég tala af reynslu: Snúðu við eftir 15 mínútur, því annars verður hálftíminn að klukkustund).
Síðan verður að huga að vinunum því þeir eru eins og blóm: það þarf að vökva þau daglega. Líka þegar þú ferð í frí. Það er að segja ef þú ferð í frí.
Síðan þarf að vera vel upplýstur. Lesa að minnsta kosti tvö dagblöð og eina grein í tímariti til að bera upplýsingarnar saman.
Ah! Síðan er það kynlífið. Kynlíf daglega og þar að auki á það að vera frumlegt og skapandi . Þetta tekur sinn tíma!!! Að maður tali nú ekki um tantra kynlíf!!! Að öllu framansögðu vil ég minna þig á: Það á að tannbursta sig eftir hverja máltíð. Það þarf líka að skúra, þurrka af, þvo þvott, fara í sturtu og vaska upp og áttu kannski hund að auki eða hamstur? Börn?!
Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag. Eina lausnin á þessum vanda, er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu. Til dæmis: Þú ferð í kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þannig lítrana tvo af vatni. Þegar þú gengur út úr baðherberginu með tannburstann í munninum nýturðu um leið ásta (tantrískt) standandi með makanum þínum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir þér frá á meðan þú burstar tennurnar. Var ein hendi laus?
Hringdu í vinina!!! Og foreldrana!!!
Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því að halda) eplið getur makinn þinn matað þig á á meðan þú borðar bananann með jógúrtinu. Úffffff! En ef þú átt tvær mínútur eftir , sendu þetta þá á vinina (sem þú þarft að vökva eins og blóm) um leið og þú tekur inn eitt hvítlaukshylki sem er svo gott fyrir... En nú verð ég að hætta því eftir jógúrtið, appelsínuna, bananann, bjórinn, fyrri vatnslítrann, þriðju máltíðina með trefjum, hef ég ekki hugmynd um það hvað ég er að gera og þarf nauðsynlega að komast á klósettið. Aha, ég ætla að nýta tímann og kippa tannburstanum með mér.
Ef ég er senda þér þetta í annað sinn , er það vegna þess að þráttfyrir að fylgja öllum þessum ráðum er ég samt komin með alzheimer.
Þvílík frammistaða okkar manna og kvenna á fyrsta klifurmóti björgunarsveitarinnar á Laugarvatni. Í klifrið mættu galvösk þau Lilja, Jói og Fabio og stóðu þau sig öll nokkuð vel. Þó var Jói án efa fremstur meðal jafningja þar sem hann lauk fyrstu umferð með fullt hús stiga en varð á endanum að láta í minni pokann fyrir Lilju á öðru ári. Hann endaði í öðru sæti ásamt Helgu á öðru ári og Guðna úr ML. Vel af sér vikið og undirritaður skorar á sem flesta að koma og prófa og reyna að bæta árangur Jóa.
The Man
12. nóvember 2008 klukkan 22:03
Elvar Már Svansson 2 athugasemdir
Næsta föstudag kemur að stóru stundinni, heimsókn Akademíunnar (HR) hinngað á laugarvatn. Nú er tími til að grípa aftur bikarinn góða og koma honum á heimaslóðir!
Keppnisgreinarnar verða eftirfarandi:
- Blak - Bandý - Kíló - Glíma - Stígvélaspark
Keppendur óskast í þessar greinar.
Skrallið hefst klukkan 18:00 niðri í íþróttahúsi.
Eftir að við höfum gengið frá þeim (HR) út í húsi hefst svo þétt dagskrá.
Byrjað verður á að nærast í boði Vatnsins í matsalnum.
Þar næst verður fólki boðinn sá ógnvekjandi kostur að ganga í gegnum draugakjallarann mikla!!!
Og svo verður slegið upp heljarin BALLI í kjallara stofunni!!! Halloween/hrekkjavökuball!! Verðlaun verða veitt fyrir flottasta búninginn, mest ógnvekjandi búninginn og skammar verðlaun fyrir lélegasta búninginn!
Skemmtunin stendur fram eftir kvöldi og nóttu!
Þá er það bara að taka fram keppnisskapið og ógnvekjandi búning!
Lítið eitt atriði!
Öll þessi herleg heit kosta skitnar 500 kr. á kjaft (matur, ball, draugahús + þrif)
Breytt hefur verið um forsíðumynd til heiðurs halloween ballsins sem er á föstudaginn sumum til mikillar gleði en ekki örvænta því Fabio sjálfur mun skarta forsíðunnar fyrr en varir.
Þann 28. október fór fram æsispennandi körfuboltaleikur þar sem mættust snillingarnir í Fabio´s og vistmenn geðdeildar HÍ, betur þekktir sem Fagmenn.
Leikurin var æsispennandi framan af þar sem Fabio´s fóru hreinlega á kostum og settum niður hverja körfuna af annari á meðan Fagmenn sátu með slefið niður á bringu og gátu lítið sem ekkert.
Þó fóru leikar þannig að lokum að Fagmenn höfu betur með fáum stigum en það skiptir ekki öllu máli!
Í liði Fabio´s voru leikmenn hver öðrum betri. Jón Þór sýndi stórkostlega boltameðferð á meðan Haukur "Jabbar" (kallaður ROTARINN!!!) straujaði stærsta Fagmann vallarins í gólfið. Pétur sýndi eindæma hörku og baráttu og setti niður mikilvæg stig í lokin. Stjáni fór á kostum í fráköstunum (en hann var einmitt næst minnsti maður vallarins). Jói "Bónus" var eins og klettur í vörninni og safnaði nokkrum villum en Höddi "Blái" (kallaður TYPPIÐ) átti skot leiksins "at the buzzer". Loftur var lék við boltann af mikilli fimi og átti nokkrar góðar stoðsendingar. Viktor var án efa kappklæddasti maður vallarins en átti góðan leik engu að síður. Helstu löstur leikmanna Fabio´s var vítanýtingin en það var eins og pressan væri of mikil að spila fyrir fullu húsi æstra áhorfenda. Verða þeir rannsakaðir megindlega og eigindlega í bak og fyrir og sendir í sálræna meðferð hjá Kára til að yfirvinna pressuna og bæta vítanýtinguna fyrir næsta leik.
Strax eftir leikinn komu upp grunsemdir um lyfja misnotkun hjá leikmönnum Fagmanna og orðrómur um mútur til dómara leiksins, sem myndi útskýra vafasamar villur sem dæmdara voru á leikmenn Fabio´s og öll þau grófu brot sem leikmenn Fagmanna komust upp með. Málið verður sent til aganefndar á næstu dögum og Fagmenn settir í kalda sturtu og flengdir!
Fabio´s lengi lifi.
Fyrir hönd íþróttafréttadeildar Fabio´s, Doddy "THE MAN" Sævarsson
Tékkið á myndunum!
28. október 2008 klukkan 13:30
Elvar Már Svansson 2 athugasemdir
Fingrapolki Karl gekk út um morgunn tíma, Taldi alla sauði sína. 1 og 2 og 3 og 4 Allir voru þeir. Með höndunum gerum við klapp klapp klapp Með fótunum gerum við stapp stapp stapp 1-2-3- ofurlítið spor Einmitt á þennan hátt er leikur vor.
Skósmiðadrengurinn Fyrst á réttuni og svo á rönguni Tjú tjú tralla la Fyrst á réttuni og svo á rönguni Tjú tjú tralla la. Skósmiðadrengurinn hann er svín Drekkur bjór og brennivín, Skósmíðadrengurinn hann er svín Drekkur kaffi og appelsín
Byggingadans Fyrsta, önnur, þriðja, fjórða Svona stórt er húsið mitt Kjallari, fyrsta hæð, önnur hæð, ris Svona stórt er húsið mitt. Við reisum okkur húsin há Hlý og fögur að líta á Þegar öllu lokið er Ykkur býð ég heim með mér.
Starfsmannafatnaður: Það er ætlast til þess að þú komir klædd/ur í vinnuna þína í samræmi viðlaunatekjur þínar. Ef þú mætir klædd/ur í 40 þúsund króna Prada strigaskóm eða er með 80þúsund króna Gucci handtösku, gerum við ráð fyrir að þú sért á nógu góðumlaunum og þurfir alls enga launahækkun. Ef þú kemur fátæklega klædd/ur biðjum við þig að fara betur með peninganaþína, svo þú getur keypt þér betri/fallegri föt. Ef þú aftur á móti erteinhvers staðar þarna á milli ert þú sennilega á réttum stað og þarft engalaunahækkun. Veikindadagar: Við tökum ekki á móti læknisvottorðum. Ef þú getur farið til læknis ogfengið hjá honum vottorð, geturðu alveg eins mætt í vinnu. Aðgerð: Uppskurðir/aðgerðir eru bannaðar. Svo lengi sem þú ert starfsmaður hérna,þarftu á öllum þínum líffærum að halda. Og ættir þess vegna alls ekki að látafjarlægja neitt. Þú varst ráðinn með öll líffæri og ef það breytist á einhvernhátt er það brot á ráðningasamningi þínum. Persónulegt leyfi fyrir utan orlof Hvern launþegi fær 104 daga á ári til að sinna einkaerindum. Þeir dagareru kallaðir laugardagar og sunnudagar. Orlofsdagar: Allir starfsmenn eiga að taka orlofsdagana síma á sama tíma á hverju ári.Þeir dagar eru 24 desember (e.hádegi)25 desember, 26 desember, 31 desember (e.hádegi) 1janúar, skírdagur, föstudagurinn langi, annar í páskum, og frídagurverslunarmanna. Og eftirtaldir dagar ef þeir bera upp á virkan dag. 1 maí og 17júní. Fjarvera vegna jarðarfara: Það er ekki til nein afsökun fyrir því ef þú mætir ekki í vinnu. Það erekkert sem þú getur heldur gert fyrir látna vini, ættingja eða samstarfsfólk. Reynaætti af öllum mætti að láta aðra sjá um og mæta í jarðaför viðkomandi. Ísérstökum undantekningar tilvikum þar sem starfsmaður verður að mæta, skaljarðaförin tímasett seinnipart dags. Okkur er sönn ánægja að leyfa viðkomandistarfsmanni að vinna matartímann sinn upp í þær stundir sem hann yrðivæntanlega fjarverandi. Fjarvera vegna eigin dauða: Þetta er líklega eina fjarveran sem við tökum til greina. Samt sem áðurer ætlast til þess að starfsmaður gefi okkur alla vega tveggja vikna fyrirvarasvo hægt sé að aðlaga og taka nýjan starfskraft inn í þitt starf. W.C ferðir: Allt of mikill tími fer í salernisferðir hjá starfsmönnum. Í framtíðinniverður þannig hátturinn á að að nota stafrófið sem hjálpartæki. T.d nöfn sembyrja á 'A' eiga að nota salernið frá 08:00-08:20, nöfn sem byrja á'B' frá 08:20-08:40 og svo frv. Ef svo óheppilega vill til að þúeihverra hluta vegna kemst ekki á salernið á umsömdum tíma verður þú að bíðanæsta dag. Í algjörum neyðartilfellum, mega starfsmenn þó skipta út sínum tíma. Þá verður það að vera skriflegt og undirskrifað af ykkar verkstjórum. Hámarkstími eru 3 mín, og ef þú ferð yfir þann tíma mun hringing fara ígang, klósettrúllan rúllast upp til baka, dyrnar verða opnaðar og af þér verðurtekin mynd. Hún verður síðan sett upp á auglýsingatöflu öðrum til varnaðar. Hádegisverðarhlé: Mjög grannt fólk fá 30 mínútna hádegisverðarhlé, þar sem það verður aðborða meira og líta betur út. Fólk í kjörþyngd fær 15 mínútna hádegisverðarhlé,og fær tækifæri á að borða sinn mat til að viðhalda góðri líkamsþynd. Feittfólk fær 5 mínútna hádegisverðarhlé, sem er fullnægur tími til að drekkaHerbalife og taka inn megrunartöfluna sína. Svo þökkum við ykkur fyrir tryggð við stofnunina. Við erum til staðar ogreynum að skapa skemmtilegan og jákvæðan starfsmanna – móral. Þess vegna óskumvið eftir því að allar spurningar, athugasemdir, áhyggjur, kvartanir, ásakanir,illska og leiðindi verði beint eitthvað annað.
28. september 2008 klukkan 13:14
Elvar Már Svansson 2 athugasemdir