Bruzzurnar standa fyrir sínu
Stelpurnar okkar standa fyrir sínu!Í dag fór fram leikur í handknattleik þar sem hinar yndizhleghu og þokkafullu Bruzzur völtuðu yfir sameinað lið eldri borgara og öryrkjafélags Laugvetninga.
Jafnt var á öllum tölum í lok venjulegs leiktíma, 5-5, en þá tók Arna sig til í markinu og skellti í lás! Varin skot 24 og nú þegar hafa borist nokkur tilboð í þessa efnilegu markverju frá liðum í Noregi, Súdan og Danmörku.
Sóknarkonur Bruzznananna áttu hvert færið á fætur öðrum og svo koma að lokum að því að Eyrún "Steeeefánssooon" setti tuðruna í sammarann og inn, án þess að öryrkjaverjurnar kæmu nokkrum vörnum við. Stórkostleg skytta þar á ferð.
Gólftuska leiksins var valin Steinunn "Á rassgatinu" sem eyddi gríðarlega miklum tíma í að leita að hárspennunni sinni á gólfinu og öðrum eyrnalokkinum. En í vörninni stóð hún eins og klettur og sneri allar sóknarkonur eldir borgaranna í gólfið eins og vanur dyravörður.
Lilja "fótaskemill" átti "move" leiksins þegar hún gaf hugtakinu "að stilla upp fyrir skyttuna" nýja merkingu. Einstakt hugmyndarflug hjá Liljunni. (Sjá skófar Lilju milli herðablaða Eyrúnar).
Aðrar leikkonur létu minna fyrir sér fara en stóðu sig í heildina vel.
Fabio´s! Verum stoltir af stelpunum okkar sem lönduðu hér með sínum öðrum sigri í jafn mörgum áskorunum.
Íþróttafréttaritari Fabios,
Barack " The Man" Obama
04. febrúar 2009 klukkan 00:25
Elvar Már Svansson
Elvar Már Svansson
