10júní

Heillaóskir.

Fabio´s óska Ingó og frú innilega til hamingju með frumburðinn.
Með ósk um tonn af kúkableyjum, andvökunætur og smábarnagubb, skemmtu þér velTongue out.
10. júní 2009 klukkan 13:17
Elvar Már Svansson
Engin athugasemd
14maí

Sumarfrí

Það er komið sumar. Vonandi gekk öllum vel í prófunum, ef ekki sjáumst við aftur þegar endurtökuprófin verða haldin.
Endilega setjið inn hvað þið verðið að stússast í sumar, svæsnar drykkjusögur, íþróttaafrek eða bara eitthvað blaður.
Guð geymi blessi Ísland og Fabio´s.

Kv. Doddy
14. maí 2009 klukkan 18:47
Elvar Már Svansson
1 athugasemd
27mars

Skíđaferđin 2009.

Sjáumst hress á Akureyri. Farið varlega upp á heiðar og munið eftir sólkreminu, við heimtum sól!

The Man
27. mars 2009 klukkan 15:14
Elvar Már Svansson
Engin athugasemd
12mars

Fabio´s mćla međ..

Stórmyndinni "The Guardian" fyrir hvern tíma í björgun hjá Haffa. Þar kunna menn að troða friggin´ marvaða.
12. mars 2009 klukkan 13:39
Elvar Már Svansson
Engin athugasemd
27febrúar

Nýtt á síđuna.

Forsíðumyndin er úr einkasafni Péturs.

Hugmynd! Hvaða nýjungar/kannanir viljið þið Fabio´s sjá á þessari síðu svona rétt til að gera hana skemmtilegri?

Hvað með "Drusla vikunnar", "Flottustu koddarnir" eða "Byssur bekkjarins"?

Fyrir ykkur sem eruð að læra líffærarfræðina er þetta gagnleg slóð:
http://anatomyarcade.com/games/PAM/PAM.html

The Man.
27. febrúar 2009 klukkan 22:48
Elvar Már Svansson
Engin athugasemd
24febrúar

Kosningar.

Sælir félagar Fabio´s.

Innan skamms verður kosið í nemendaráð nemendafélagsins á Laugarvatni og vill undirritaður hvetja alla til að nýta sér kosningarrétt sinn og kjósa í nefndir félagsins.
Einnig má til gamans geta þess að alltaf vantar gott fólk til starfa innan nemendafélagsins og því upplagt fyrir þá sem hafa eitthvað til málanna að leggja og vilja hafa áhrif á framvindu mála hér á Vatninu að bjóða sig fram í þær stöður sem vantar í.

Annars allir hressir? Ok, gott að heyra.

Doddy "the Man"
24. febrúar 2009 klukkan 20:51
Elvar Már Svansson
Engin athugasemd
04febrúar

Hann er međ kúlur.

Bangsi bekkjarins, Ingó Bingó, sem á afmæli í dag nota bene, náði 4. sæti í í kúluvarpi í frjálsíþróttamóti í Laugardalshöllinni um helgina. Þökk sé vel hertum gluteus max kastaði kjaallinn vel yfir 2 metra en eitthvað frá nýju íslansdmeti samt sem áður.

Fabio´s óska Ingó til hamingju með árangurinn og með daginn.
04. febrúar 2009 klukkan 08:36
Elvar Már Svansson
3 athugasemdir
04febrúar

Bruzzurnar standa fyrir sínu

Stelpurnar okkar standa fyrir sínu!

Í dag fór fram leikur í handknattleik þar sem hinar yndizhleghu og þokkafullu Bruzzur völtuðu yfir sameinað lið eldri borgara og öryrkjafélags Laugvetninga.

Jafnt var á öllum tölum í lok venjulegs leiktíma, 5-5, en þá tók Arna sig til í markinu og skellti í lás! Varin skot 24 og nú þegar hafa borist nokkur tilboð í þessa efnilegu markverju frá liðum í Noregi, Súdan og Danmörku.

Sóknarkonur Bruzznananna áttu hvert færið á fætur öðrum og svo koma að lokum að því að Eyrún "Steeeefánssooon" setti tuðruna í sammarann og inn, án þess að öryrkjaverjurnar kæmu nokkrum vörnum við. Stórkostleg skytta þar á ferð.

Gólftuska leiksins var valin Steinunn "Á rassgatinu" sem eyddi gríðarlega miklum tíma í að leita að hárspennunni sinni á gólfinu og öðrum eyrnalokkinum. En í vörninni stóð hún eins og klettur og sneri allar sóknarkonur eldir borgaranna í gólfið eins og vanur dyravörður.

Lilja "fótaskemill" átti "move" leiksins þegar hún gaf hugtakinu "að stilla upp fyrir skyttuna" nýja merkingu. Einstakt hugmyndarflug hjá Liljunni. (Sjá skófar Lilju milli herðablaða Eyrúnar).

Aðrar leikkonur létu minna fyrir sér fara en stóðu sig í heildina vel.

Fabio´s! Verum stoltir af stelpunum okkar sem lönduðu hér með sínum öðrum sigri í jafn mörgum áskorunum.

Íþróttafréttaritari Fabios,
Barack " The Man" Obama
04. febrúar 2009 klukkan 00:25
Elvar Már Svansson
1 athugasemd
23janúar

Stćltar byssur og abs of steel.

Sælir Fabsar!

Hverjir eru með strengi í gluteus maximus eftir boltaæfingarnar hjá Óskari? Einhverjir með brotin rif eða marblettir eftir Víði og Pétur? Þjáist þið af ofkælingu eftir sundtíma hjá Hafþóri?

Vorönnin byrjar með látum! Fabio´s verða í suddalegu formi á þessari önn. Hef enga trú á að kjúllarnir á 2. og 3. ári leggi í að skora á okkur í neinu öðru en útsaum og kökubakstri!

Barack "The Man" Obama leggur til að 1. árs tuddarnir skori á hverja aðra ef þessir þriðjudagstímar eiga í nýtast í eitthvað. Ungir vs gamlir, Reykjavík vs landsbyggðin, jan-júní vs júlí-des...

Skiptum í lið and let´s do this!!!
23. janúar 2009 klukkan 15:26
Elvar Már Svansson
1 athugasemd
27nóvember

Litlu jólin

HÓ!

Það er skítakuldi, styttist í annarlok og því tími til kominn að setjast niður með kakó og smákökur í góðra vina hópi og syngja jólalög, spila á spil eða ræða muninn á A-Vo2 diff. hjá börnum og fullorðnum. 

Hvetjum næstum alla til að mæta og þeir sem ekki eru búnir að borga skitinn 500kreppukall í sjóðinn okkar vinsamlegast setja í gír og drífa sig að því.

F.h skemtinefndar,
Barack "The Man" Obama
27. nóvember 2008 klukkan 11:44
Elvar Már Svansson
1 athugasemd

Klukkan

Auglýsing

Könnun

Prófin?

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...